18.8.2006 | 23:25
Kvart og kvein
Jæja, ætli þetta sé ekki milljónasta tilraunin mín til að blogga... hef bara einfaldlega tilhneigingu til að gefast upp á dagbókum. Hvað þá ef það er ætlast til að einhver lesi hana!
Ég er búin að vera veik í 10 daga núna og komst að því á miðvikudaginn að ég væri komin með LUNGNABÓLGU!! Sem Andri var svo vænn að benda mér á að aðeins gamlar, hrumar kellingar fengju. Núna er ég búin að fá gjörsamlega nóg af því að vera heima! Menningarnótt á morgun og ekki einusinni víst að ég fari út úr húsi! Kominn á sýklalyfjakúr númer 2 og hætt að geta borðað nema í mýflugumynd.... hnuss ekki nógu gott
Blogg snýst nú víst um að blaðra um sjálfan sig svo ég hlýt að mega kvarta og kveina.
En vá, Andri náði í seríu 2 af Gray's Anatomy fyrir mig fyrir nokkrum dögum... og OMG hvað þessi þáttur er frábær!!!! Var að klára síðasta þáttinn áðan og langar bara mest að fara annan hring! Meredith, George, Christina og Izzy eru einfaldlega orðin bestu vinir mínir (no offence =) Ég ætla pottþétt að kaupa mér þetta á DVD.
Núna er ég að prjóna annað barnateppið mitt í röð.... engin furða að ættingjarnir spyrji til skiptis hvenær ég ætli nú að verða ófrísk! En kommon, hafði þið SÉÐ barnaföt og barnateppi. 100 sinnum sætara en fullorðinsprjónadótið!
Farin að vaða úr einu í annað... nóg í bili =)
Eldri færslur
Tónlist
Tónlist
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er nú gleðilegt að óhemjan sé farin að blogga!
Agnar Freyr Helgason, 19.8.2006 kl. 01:33
Til hamingju með bloggið ;) Þú stóðst þig bara mjög vel, og ég þarf endilega að komast inn í þennan gray's anatomy fan club !!!
Guðrún Lilja Kristinsdóttir (IP-tala skráð) 19.8.2006 kl. 15:09
Hæ beibí. Til lukku með inleggið, megi bloggið hljóta háan aldur og færslurnar vera margar, þrefalt húrra. Húrra! Húrra! Húrra!
Andri Sigurðsson, 20.8.2006 kl. 13:29
Ekki segja mér að bloggið þitt sé strax dáið??
Guðrún Lilja (IP-tala skráð) 29.8.2006 kl. 10:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.